Ég er fífl

Ég er fífl sem á ekki afrit af gögnunum sem eru í tölvunni minni.  En þökk sé honum TölvuBenna þá varð ég ekki að þeirri fíflategund sem tapaði öllu út úr tölvunni sinni OG ÁTTI EKKI AFRIT.  TölvuBenna tókst að bjarga öllum gögnunum mínum, bæði vinnu og prívat.  Og nú á ég tölvu með nýjum og stærri hörðum diski.

Á morgun ætla ég að hætta að verða fífl og taka afrit af öllum gögnunum mínum.  Smile 

 


Riffill, tætari og basúkka.

klukkan 7,50 í morgun, frammi í forstofu,  ræddu bræður af miklum móð um mismunandi aðferðir við að hlaða mismunandi vopn, eins og riffil, tætara og basúkku.  Umræðan tók þó endi þegar stressuð móðirin galaði eitthvað á þessa leið " eruð þið ekki ennþá búnir að klæða ykkur og við eru orðin allt sein "  Það hafðist og bræður mættu í skólann á (næstum) réttum tíma.

Eins gott að það voru ekki vitni að þessum samræðum - hljómar eins og ungliðadeild Al Kaieda ! 

 


mottur og hjúkrunarheimili með minnkandi þjónustustig

Eins og margir vita er mottumars þar sem bæði norski  og hafnfirski bróðir taka þátt.  Sá norski skoraði á bóndann sem ákvað fyrir stuttu að taka þátt og hamast nú við að safna í mottu.  Ekki það að hann hafi neitt skárra að gera en mikið sem ég verð fegin þegar mars - tími hár og hor mottu verður liðinn.   Ég hugga mig við það að hinar fjölmörgu tilraunir sem bóndinn hefur gert í gegn um tíðina til að safna einhvers konar skeggi hafa aldrei tekist.  Hann hefur alltaf gefist upp og sótt hr Gillette.

Vinnufélagi minn sem er kona á besta aldri eins og ég á eiginmann sem skartar stoltur svokallaðri mottu þessa daganna, við lítinn fögnuð dætra og eiginkonu.  Eiginkonan hótaði því eitt kvöldið að munda rakvélina og losa andlitið við þessa hárbrúsk einhverja nóttina.   Hún dró það samt fljótlega til baka þegar eiginmaðurinn glotti og sagðist myndu borga fyrir sig með þvi að raka aðra augnabrúnina af henni einhverja nóttina á eftir.  Vinnufélagi er ennþá með tvær augabrúnir og eiginmaður vinnufélaga skartar ennþá hárbrúski fyrir ofan efri vör. 

Þjónustustigið við bóndann fer lækkandi.  Í morgun fór ég í vinnuna án þess að skilja neitt tilbúið eftir fyrir eiginmanninn til að snæða.  Skellti hníf, ostaskera og sultu á stofuborðið ásamt hrökkbrauði og flatbrauði.  Hann þurfti að sækja smjör og ost í ísskápinn og smyrja sjálfur.  Vonda konan ég Devil  En menn sem geta klætt sig sjálfir í skóna sína geta líka smurt brauðið sitt sjálfir !    þessi lega er að fara frekar illa með hann, hann safnar hormottu og horfir á dr Phil í sjónvarpinu eftir að hann er búinn að rífast við þingmenn á annarri sjónvarpsrás. 

Það fjölgar á hjúkrunarheimilinu í vikulokin en móðir mín elskulega leggst undir hnífinn í vikunni ( brjósklos) og ætlar að vera hjá mér í einhverja daga.   Þau Eiður geta allavega farið í taugarnar á hvort öðru  Whistling því ekki verða þau fær um margt annað. 

Bræður gátu verið á venjulegum skóm í allan dag og voru hæst ánægðir með það.  Veðurspáin býður ekki upp á annað en stígvél á morgun.  Það verður ekki eins mikil hamingja með það. 

 


Mokaði ekki mikinn snjó

Þó svo snjórinn hafi sýnt sig hér á Suðurnesjunum þá verður seint sagt að ég hafi mokað mikinn snjó.  Tók mig þó til í vinnunni og mokaði frá skrifstofudyrunum.  Kom svo heim og mokaði bílastæðið meðan JA mokaði snjóinn frá dyrunum.  Meira var ekki mokað.  Enda allur snjór farinn og von á syndaflóði næstu daga.

Stóri átti dálítið bágt  - sitja aleinn inni í stofu með hækjunum sínum með frúin klæddi sig í kuldagalla og mundaði snjóskófluna.  Held að honum hafi þótt vegið að karlmennsku sinni Woundering   Miðað við aðstæður hefur hann það ágætt, verkirnir farnir að minnka og hann getur aðeins beygt hnéð og er farinn að tylla örlítið í fótinn  svo hann er ekki alveg eins "ósjálfbjarga "  Er farinn að geta klætt sig sjálfur þannig að nú þarf ég ekki lengur að vekja hann og klæða áður en ég fer í vinnunna.   Svo kom Bjössi "hjálpartækjasmiður" í heimsókn í vikunni - búinn að smíða þessa fínu plötu sem er sett ofan á baðkarið.  Tími þvottapokans og vaskafatsins er sem sagt liðinn og bóndinn naut þess virkilega að komast loksins í sturtu.

Á síðasta föstudag las ég bókina hennar Láru Ómars sem heitir Hagsýni og Hamingja og fjallar um hvernig eigi að spara,  nýta það sem maður hefur og á, og gera mikið úr litlu.   Eitthvað fór bókin öfugt í mig ( ég hef kannski lesið hana afturábak ) því á sunnudeginum keyrði ég í Reykjavíkina og eyddi fullt af peningum í skó á mig.  Ætlaði að skoða vetrarúlpur á bræður en keypti sumarjakka á þá í staðinn. 

Er farin að hlakka mikið til að fara austur og á Hammond hátíðina - hef trú á að ég hitti slatta af brottfluttum Djúpavogsbúum þar í bland við þá sem búa þar núna.  Bara gaman.  Ekki spillir fyrir að báðir bræður mínir ætla að mæta þannig að foreldrar mínir verða með fullt hús í orðsins fyllstu merkingu. 

Bjó til girnilega orkustangir í gær sem bræður fá með í nesti í fyrramálið.  Deili kannski uppskriftinni við tækifæri.

 


Konudagur í dag og hvað með það

Ósköp venjulegur sunnudagur nema hvað um hádegisbilið fengum við gesti.  Skemmtilegt fólks sem stendur oft upp úr sófanum og heimsækir annað fólk.   Bóndinn lá ennþá í rúminu, bræður léku sér og ég var önnum kafin við að þrífa. 

Skúringafötunni var snarlega skellt til hliðar, bóndinn fékk aðstoð við að klæða sig og bræður fengu leikfélaga í heimsókn.  Notaleg stund að baki, bræður komnir út og við hjónin ein heima. 

Sá stóri  glímir við tölvuna svo hann geti séð enska boltann, ég ætla að hengja upp úr þvottavélinni og reyna svo að finna út hvað mig langar að borða í kvöld.  Ég verð víst að elda það líka en það er önnur saga........................

Bóndinn fékk símhringingu í gær " til hamingju "  var sagt í símann.

Bóndinn þagði smá stund og sagði svo " með hvað" ?

Viðmælandinn hinu meginn trúði varla sínum eigin eyrum " með hvað, þú fékkst dýr maður "

Þá kveikti bóndinn loksins, það var víst dregið í hreindýralottóinu  og loksins fékk hann úthlutuðu dýri.    Svona fer það með heilastarfsemina að vera heima í sófanum í næstum 4 vikur.  En þessar fréttir ættu að virka hvetjandi fyrir þann stóra sem verður virkilega að vera duglegur í endurhæfingu og æfingum ef hann ætlar sér að fella dýrið sjálfur Wink

Bræður horfðu með öðru auga á Gettu Betur í sjónvarpinu í gærkvöld.    þar var m.a sýnt gamalt viðtal við Halldór Laxness heitinn, að sjálfsögðu í svarthvítu.  Strákur horfði á þetta og sagði svo " hann hlýtur að vera fæddur 18 hundruð og eitthvað - fannst maðurinn greinilega afskaplega forneskjulegur og aldraður.  Það munaði ekki miklu hjá stráksa en Halldór fæddur Guðjónsson var fæddur 23 apríl 1902.

Skítakuldi úti en fínasta gluggaveður - kemur í ljós hvort ég legg í að fara gangandi í búðina á eftir.

 


Ef ég væri karlmaður

Hefði heimilisfólkið fengið að heyra í morgun

"  Ég ætla að þvo bílinn, hann er alveg grútskítugur "

Þegar bíllinn hefði verið orðinn hreinn þá hefði komið önnur tilkynning    "ég er búinn að þrífa bílinn, hann var sko virkilega  óhreinn "

en þar sem ég er kvenmaður kom engin svona tilkynning. Whistling    Eiginmaðurinn er búinn að svekkja sig heil ósköp á skítugum bíl síðustu tvö skiptin sem hann hefur farið út fyrir hússins dyr ( í skoðun á landspítalann í Fossvogi )   Rusl og drasl innandyra truflar hann hins vegar alls ekki - ekki einu sinni 3 sentimetra þykkt ryklagið sem var komið á hillurnar í stofunni.  

En bíllinn - það er hins vegar annað mál.  En þar sem  þráðurinn í karli er farinn að styttast eftir næstum 4 vikna sófalegu þá var eins gott að strjúka aðeins af bílnum.  Bíllinn var sem sagt þveginn í dag !

 


geturu geft mér

14 þúsund krónur þegar ég á afmæli sagði 8 ára strákur í kvöld en hann var í afmælisveislu hjá bekkjarsystur sinni og orðinn dálítið ör.

til hvers þarft þú 14 þúsund krónur sagði mamman hin rólegasta.  Sko mig vantar að kaupa svona kall ( og svo kom lýsing á þessu ákveðna leikfangi ) puttahjól og puttabretti og annað puttabretti og eitt svona hjól í viðbót.   Strákur var handviss um að þetta allt kostaði 14 þúsund krónur.  Ekki seinna vænna en að leggja inn óskalistann fyrir afmælið í október.

En strákur var ekki alveg hættur að tala - hann fékk sko að leika með puttahjól í afmælinu og hann gerði  " þrísixtý - bekkflip og slædaði "   Ég þorðii ekki fyrir mitt litla líf að biðja um nánari útskýringu á þessu, nógu  hallærislegur og gamaldags  er maður er nú þegar.  Ég hef samt grun um að þetta séu ákveðnar listir sem snillingar á jútúb framkvæma á bmx hjólum Blush

Það er aldrei of seint að læra eitthvað nýtt - hin 40 ára gamla húsfreyja ákvað að árið 2010 yrði árið sem hún bakaði alvöru vatnsdeigsbollur í fyrsta skiptið á æfinni.  Og það gerði hún W00t.  Þessar guðgómlega góðu og glæsilegu vatnsdeigsbollur með sultu, rjóma og súkkulaðibráð ofan á.  " bestu bollur sem ég hef smakkað " sagði saddur og sæll strákur með súkkulaði á nefi og kinnum.   

Ég ætla að sjóða saltket fyrir manninn í sófanum á morgun en sníkja mér súpu í vinnunni.  Það verður örugglega tvíréttað hér annað kvöld þar sem ég og bræður fáum Sprengidagsmatinn í hádeginu.  Ég er meira að segja að hugsa um að taka með mér nesti í vinnuna ( í stóreldhúsið sjálft ) - mér finnst saltket og baunir afskaplega lítið spennandi matur !

 


crazy bastard

Smá húmor svona á laugardagskvöldi

Hef ekki bloggað lengi

en er að hugsa um að bæta aðeins úr því núna - sjónvarpið svo assgoti leiðinlegt að það hálfa væri nóg.   Er búin að kíkja bloggrúnt - hanga á fésbókinni - fara í langt og gott bað og fannst þá upplagt að leggjast fyrir framan sjónvarpið og hjálpa bóndanum  að horfa á sjónvarpið.  Gekk ekki upp vegna leiðindaAngry

Bóndinn er þaulsætinn fyrir framan sjónvarpið þessa dagana enda ekki völ á öðru.  Hann lagðist undir hnífinn 26 jan og kom heim sólarhring seinna með utanáliggjandi varahlut.   Og í þessari stellingu er bóndinn nánast búinn að vera síðan hann kom heim.

Fótleggur með varahlut Eiður aðgerð

Þetta er mjög sársaukafullt eins og er en samkv lækninum þá ætti sársaukinn að fara að minnka á næstu 2-3 vikum og hann þá að geta snúið sér að því æfingum og jafnvel farið að staulast um, þ.e. a.s lengra en á salernið og inn í rúm. 

Eins og er heldur hann til í stofusófanum á daginn, með kaffivélina við höndina, símana, tölvuna og slatta af pepsimax.  Ég set matarkyns á stofuborðið áður en ég fer í vinnuna og svo eitthvað meira í ísskápinn sem hann annaðhvort sækir sjálfur um hádegið eða bíður eftir að bræður komi heim úr skólanum svo þeir geti stjanað við hann.

Hann er furðu skapgóður ennþá miðað við hvað hann á erfitt með að þola aðgerðarleysi.  Það má kannski þakka öllum fínu töflunum hans  - ekki er hann svona glaður yfir því að hanga heima allan daginn og horfa á sápuóperur.Blush

Bræður fengu ágætis umsagnir í foreldraviðtölum í síðustu viku - annar er reyndar dáltítið ör og á erfitt með að vera kyrr í tímum en hinn er alla jafna stilltur og prúður.  Sá stillti er reyndar ekkert alltaf stilltur en hann var sendur á skrifstofu deildarstjóra í þarsíðustu viku.  Tölum ekki meira um það.  En þeir virðast hafa þokkalega góða (meðal) greind og eru báðir vel yfir viðmiðunarmörkum í lestri.  það má nú monta sig af því.

Foreldrar ákváðu um daginn að tími vasapenings fyrir bræður væri runninn upp.  Það var almenn hamingja með það og ekki laust við að bræður finndu til sín þegar þeir skrifuðu undir sinn hvorn samninginn.  Þeir þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá fullan vasapening.  Ef einhverjar skyldur eru ekki uppfylltar þá dregst ákveðin upphæð af.  Eins gott að gleyma engu.    í samningnum er ákvæði um sparnað.  Ef strákur vill spara vasapening - hluta eða allan - þá fær hann vexti.  Ef hann ákveður að spara litla upphæð þá fær hann litla vexti - ef hann vill spara stóra upphæð þá fær hann mikla vexti.   Þetta eru gríðarlega góð vaxtakjör - allt upp í 60 % .  En gilda bara fyrir erfingjana svo það þýðir ekkert fyrir aðra að sækja um.

Annar strákur sparar um 80 % af sínum pening og fær ca 20% út.  Hinn strákur sparar um 20-30 % og fær hitt út.     Meðan annar er aurapúki og nurlari sem þykir gott að vita að hann á pening þá er hinn gjörsamlega viðþolslaus ef hann á pening og vill eyða honum ekki seinna en strax. 

Það er komin dagsetning á Hammond hátíðina - bara hamingja með það :-)

 

 

 


Einstakur laugardagur og "mans cold"

Um hádegisbilið hélt ég af stað í Höfuðborgina - alein með bros á vör. 

Tilgangur ferðar :  Eyða peningum, kaupa föt og skó, fara í nudd og á snyrtistofu.

Snyrtistofan var frábær - nuddið var einfaldlega svo frábært að það eru ekki til nógu hástemmd lýsingarorð yfir það.  Tími til að versla og skoða í búðir var hins vegar ekki nægur og ég hafði ekki nema einar buxur upp úr krafsinu.   Merkilegt að þegar maður á enga peninga þá er allt fljótandi af fatnaði og skóm sem manni langar í en þegar maður virkilega á peninga og ÆTLAR að kaupa sér föt og skó þá eru bara lítil og ljót föt í búðunum.  Angry

Kom heim og borðaði dýrindis svínalund að hætti bóndans ( sem ekki bara eldaði heldur gekk frá eftir matinn líka )

Í gærkvöldi bankaði hér ungur og myndarlegur maður á dyr - stoppaði stutt en fór á brott með alla naggrísina í bílskúrnum - samtals sjö stykki.   Nú og í framtíðinni er þetta naggrísalaust heimili.  Ég er mjög sátt við að vera laus við kvikindin en samt, smá söknuður.  Skrítið. 

Þar sem hér er hvorki snjór né hálka ( rigning og 7 stiga hiti um kvöldmatarleytið ) þá hef ég ákveðið að fá mér hjólarúnt á morgun.  Hvort sem þeir bræður ætla að koma með mér eða ekki !

Kæru bræður og mágkonur, bæði hafnfirsk og norsk.  Afmælisgjöfin var vel nýtt í dag og ég naut þess í botn.  Takk fyrir mig. 

Norski bróðir er sárlasinn - með mans cold.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband